13febrúar

13. feb 2010

Jæja ég veit nú ekkert hvort ég endist eitthvað við að blogga núna eða hvort fólk lesi ennþá blogg en ákvað að skella inn einu..Tongue out

Ég er s.s. komin hjúkrun í HÍ. Er á annarri önninni og það er sko allt að fara á fullt! Er að fara í verklegt próf á mánudaginn, kvíður frekar mikið fyrir því! Svo er slatti af skilaverkefnum framundan svo það er nú eins gott að fara koma sér í gangWink 
Gunni er alltaf á Patró núna, mér til mikillar gremjuYell mér finnst sko ekki gaman að vera ein heima, en þetta er víst e-ð sem ég þarf að fara venjast.. því hann, Davíð bróðir hans og Bára, mamma þeirra, keyptu bát og þeir eru að fara á grásleppu í mars. Núna eru þau að hamast við að setja upp á net og gera allt klárt fyrir vertíðinaWink þau eru að vinna 16-18 tíma á dag og í þau fáu skipti sem ég heyri í Gunna þá er hann svo þreyttur að hann er liggur við sofandi í símanum greyið. En hann kemur nú vonandi heim á morgun eða hinn og þá erum við að spá í að skella okkur saman í nuddCool 
En jæja ég þarf að drífa mig til ömmu í smá kaffi og síðan í vinnuna, er að vinna í Hrafnistu í Hafnarfirði..
sé til hvort ég skrifi ekki meira seinna og segi þá frá meiruWink

Liljan
13. febrúar 2010 klukkan 16:20
Lilja Sigurðardóttir
1 athugasemd
08júlí

Stiklað á stóru..

Ég er að hugsa um að blogga smá..
Það hefur verið alveg brjálað að gera hjá okkur í allt sumar.. þó mér finnist varla verið komið sumar ennþá.. ég er alltaf að vinna inni þegar það kemur einhver smá sólarglæta og svo mætti sólin alveg láta sjá sig oftar! En er þetta ekki yfirleitt svona.. sumarið er búið áður en manni fannst það byrjað
Tongue out 
En já við erum búin að vera á flakki hverja einustu helgi liggur við
Surprised Við fórum á Patró á sjómannadaginn. Fórum á fimmtudeginum með Baldri og vorum alveg fram á þriðjudag.. þá var mikið djammað og skemmt sérWink það vantaði Andreu reyndar alveg þetta áriðUndecided en svona er þetta, hún þurfti endilega að ná sér í mann hinu megin á landinu, eða svo til.. 

Helgina eftir það var ekkert gert enda þurfti maður tíma til að ná sér eftir svona mikið djamm.. síðan 19. - 21. júní þá fórum við norður. Við fengum húsbílinn lánaðan hjá Báru og brunuðum norður í Skagafjörð eftir vinnu. Kristján fékk far með okkur og við keyrðum honum útí Hofsós, þar á fjölskyldan hennar Beggýjar hús, Beggý fór norður fyrr í vikunnni. Það var líka jónsmessuhátíð í Hofsósi þá helgi svo það var fullt af fólki komið þangað á föstudagskvöldinu. Við komum við á tjaldsvæðinu þar og kysstum Andreu því hún átti afmæli en héldum svo í Varmahlíð og lögðum bílnum þar.. Þar er komið þetta líka flotta tjaldsvæði, mæli hiklaust með því við alla sem ætla í útileigu
Wink Við tókum því nú bara rólega á föstudagskvöldinu, spiluðum og fengum okkur sitthvorn bjórinn.. daginn eftir vöknuðum við um 11 leytið og steiktum okkur egg og beikonTongue out Við gengum svo upp á Reykjarhólinn þar sem við gátum horft yfir allan fjörðinn minnLaughing skelltum okkur síðan í sund og síðan í kaupfélagið og fengum okkur ísLaughing Kristján og Beggý komu og hittu okkur í Varmahlíð og við keyrðum saman í Víðivelli, gamla sveitabæinn minn, og löbbuðum þar um og fórum í kirkjugarðinn og svona.. ohh hvað ég vildi að við ættum þetta ennþá..
Jæja eftir þetta skelltum við okkur í Hofsós, lögðum húsbílnum á tjaldsvæðinu, rifum út stólanna og borðið og buðum fólki í partý
Wink hehe.. Gunni sýndi snilldarmennsku sína við að grilla og gerði það ansi velTongue out Síðan var bara haldið á ball.. og opalpelinn kom já að góðum notumSurprised ég er allavega hætt að drekka það núna! hehe.. Á sunnudeginum var keyrt heim í mikilli þynnkuFoot in mouth

Helgina eftir þetta fórum við vestur.. Siggi fór nokkrum dögum á undan okkur og múraði og flísalagði hjá Báru. Mamma kom svo með okkur Gunna á föstudeginum eftir vinnu. Það var alveg æðislegt veður á leiðinni en svo þegar við keyrðum uppá Kleifarheiði þá kom bara þokuskýjið á móti okkur
Undecided Það sást varla í Patreksfjörð fyrir þokuSurprised Við vorum komin um tíu eða ellefu leytið og vorum þá bara í róleg heitum.. fórum svo bara að sofa um eitt leytið.. Ég vaknaði daginn eftir klukkan hálf 9 og kíkti útum gluggan en þá var þessi helv.. þoka ennþá svo ég skreið bara aftur uppí enda lítið hægt að gera í svona þokuYell Við fórum síðan á fætur um hálf 11 minnir mig.. þá var þokan ennþá en var samt aðeins farin að minnka og sólin farin að láta sjá sig.. Við ætluðum í upphafi að keyra út á Látrabjarg og Rauðasand en það var náttúrulega ekkert spennandi í þessari þoku svo við ákváðum bara að fara yfir á Bíldudal, þar voru Bíldudalsgrænar.. Siggi var reyndar að klára að flísaleggja til klukkan hálf 3 minnir mig.. ég sat nú bara í sólbaði á meðanWink síðan brunuðum við yfir á Bíldudal, mamma keyrði og við hin fengum okkur bjór.. það var alveg slatti af fólki á Bíldudal og við röltum þarna um, sýndum okkur og sáum aðraWink hehe..
klukkan svona 6 eða 7 fórum við til baka á Patró en komum við í Pollinum fyrst og lágum þar í smástund
Tongue out  Síðan héldum við á Patró, grilluðum þar og svona.. við fórum svo aftur yfir á Bíldudal um 11.. þá var fullt af fólki í bænum og svaka stemming, Spútnik uppá sviði og fólk að dansaLaughing þetta var bara svona útiball.. hljómsveitin hætti nú frekar snemma að spila en þá var bara spiluð tónlist og allir voru bara úti að spjalla, syngja og fíflast! þetta var rosa skemmtilegt, líka gaman að hafa foreldrana með vesturWink 

Já og svo síðustu helgi þá gerðum við nú bara ekki neitt.. eða fórum allavega ekki neitt
Smile ég ákvað að taka mér frí á föstudaginn af því ég kemst ekkert í frí fyrr en í ágúst. Ég svaf til svona hálf 11.. þreif aðeins, eldaði hádegismat handa Gunna og fór síðan og keypti blóm í körfunar sem Bára gaf mér um daginn. svo nú eru svalirnar orðnar voða sætar og sumarlegarCool Um kvöldið komu Aldís, Ívar, Andrea og Grétar í mat.. við grilluðum hamborgara og Aldís og Ívar grilluðu pizzu.. það var fengið sér smá hvítvín með matnum og smá eftir matinn líkaWink hehe.. þau voru síðan öll farin um 12 held ég.. þá fórum við bara að sofa. Á laugardaginn fórum við í kringluna og síðan bara eitthvað á rúntinn, fórum síðan heim og slógum garðinn.. um kvöldið kom María til mín og við spjölluðum svolitla stund á meðan Gunni skrúbbaði bimmann.. um 11 leytið ákváðum við Gunni að taka rúnt uppá Akranes.. Ég fékk mér auðvitað bjór eins og sannir codriverar geraWink Við vorum ekki komin heim fyrr en hálf 3 held ég... og við sváfum sko til 2 daginn eftir! við gerðum ekki neitt á sunnudaginn, nema jú við fórum í göngutúr með Dís út á seltjarnarnes.. 

Það er mikið plan framundan hjá okkur.. næstu helgi förum við í Flatey.. Gísli og Egill ætla að halda upp á afmælin sín þar og það ætlar slatti af liði að koma saman þar og djamma
Wink 
Helgina eftir það förum við í Fjarðarhorn með Gunna familíu að veiða.
Síðustu helgina í Júlí förum við svo norður á reunion hjá mér.
Verlsunarmannahelgina ætlum við bara að keyra eitthvað á húsbílnum, veljum auðvitað stað eftir veðri
Wink 
Fiskidagurinn Mikli á Dalvík verður aðra helgina í ágúst og þangað förum við á húsbílnum.
Síðan kemur ein óplönuð helgi og svo förum við bara út til Tyrklands 21. ágúst!!!!
Cool úff get sko ekki beðið eftir þvíLaughing


Jæja þetta er nóg í bili.. ég skal reyna að blogga fljótt aftur!
Wink

08. júlí 2009 klukkan 09:27
Lilja Sigurðardóttir
4 athugasemdir
28maí

svona er þetta..

Fimmtudagur í dag.. þessi vika er bara búin að vera frekar fljót að líðaWink 

Gunni og Kristján bróðir útskrifuðust síðasta laugardag. Bára, mamma, Beggý og ég fórum í Háskólabíó þar sem útskriftin var og fylgdumst með þeim taka við skírteinunum
Laughing ég var svo stolt af þeim báðumKiss Vélstjórarnir voru allir rosa flottir, þeir voru allir með eins bindi sem voru svört með vélstjóramerkinu (held ég, allavega einhver skrúfaWink), og svo voru þeir með svartar húfur með sama merkinu á þeim.. og já bindisnælu líkaWink Eftir athöfnina komum við Gunni aðeins við heima en fórum svo í salinn þar sem veislan var haldin.. Þar var allt klappað og klárt þegar við komum, við lögðum á borð og svona á föstudagskvöldinu. Gestirnir fóru að streyma inn um 6 leitið og ég hitti slatta af nýju fólkiTongue out Veislan heppnaðist bara rosa vel.. um níu eða tíu fóru svo partý gestirnir að týnast inn og eldra fólkið lét sig hverfa.. við vorum með bollu, bjór, hvítvín og rauðvín, þetta var sko allt saman rosa flottWink Partýið stóð alveg til hálf 3 en þá fórum við til Kristjáns og Beggýar, mig langaði svo agalega að kíkja aðeins þangað en fattaði náttúrulega ekkert hvað klukkan var orðin svo við fórum ekkert niður í bæ.. kannski bara fínt því þá eyddi maður enguSmile sunnudagurinn fór svo bara í þynnku og að opna pakkaCool Gunni fékk fullt af flottum gjöfum og myndi ég segja að ég væri ánægðust með hnífaparasettið sem mamma og co gáfuWink það nýtist mér allavega bestTongue out hehe.. 

Þessi vika er nú bara búin að líða án þess að ég hafi gert nokkuð.. ég fer í vinnuna, aftur heim eftir vinnu, ét verkjatöflur og leggst uppí rúm að horfa á despó
Wink Ég er enn svo aum í kjálkanum, ég fór meira að segja til tannlæknisins á þriðjudaginn til að athuga hvort það væri ekki örugglega allt í lagi, hann sagði að ég biti svo fast saman á nóttunni og af því tennurnar eru að aðlagast því að það ja.. vantar fjórar.. þá verkjar mig svo svakalega þegar ég vakna á morgnana að það er bara ekki sniðugt sko.. og af því þetta er svo sárt þá spennist ég öll svo upp að ég er víst komin með vöðvabólgu í hálsinn og upp á höfuðUndecided og það veldur náttúrulega hausverk sem veldur síðan sársauka í kjálkanum sem veldur því að ég spennist öll upp.. sem sagt þetta er orðinn einhver hringur held ég baraSurprised svo eins og í gær þá var ég alveg að drepast þegar ég kom heim úr vinnunni, svo ég þurfti bara að éta íbúfen og leggjast upp í rúm.. og þetta skeði svo aftur í gærkvöldi.. og ég er orðin svo þreytt á því að finna stanslaust til í munninum að þið trúið því ekki!!! Gunni nuddaði mig nú reyndar aðeins í gær og mér fannst ég ná að slaka aðeins á en núna finnst mér ég alveg jafn stífFrown æi ég þurfti bara smá útrás, þetta er alveg að gera út af við mig sko!Yell 


En næstu helgi er þriggja daga frí
Laughing og ég vinn bara 3 daga í næstu viku því ég fæ frí á föstudag og mánudag þar næstu helgi, þá er sjómannadagshelgiWink við Gunni förum þá vestur á fimmtudagskvöldinu og verðum fram á mánudag..
Næstu helgi förum við á laugardeginum á Hellisand, það er reunion hjá Gunna þar um kvöldið.. við vorum að hugsa um að fara upp úr hádegi og hann ætlar að sýna mér staðinn. Ég hef aldrei komið þangað.. við gistum þar eina nótt og svo held ég að við förum bara heim aftur á sunnudaginn.. það verður fínt að vera heima í róleg heitum á sunnudagskvöldið og getað svo bara dundað sér eitthvað í fríinu á mánudaginn
LaughingLaughing 

Gísli bróðir var svo óheppinn þegar hann ætlaði í saklausa skoðun hjá hjartalækninum að hann var lagður inn.. þá heppnaðist síðasta aðgerð víst ekki nógu vel svo hann þarf að fara aftur í aðgerð
Frown frekar svekkjandi fyrir hann, því hann var loksins að ná sér eftir hina aðgerðina og var að byrja vinna aftur og svona en núna þarf hann að ganga í gegnum þetta allt aftur og getur ekkert unnið í sumarSurprised ég vorkenni honum svo, þetta er alveg ömurlegt!


En ég held að það sé nú voða lítið annað sem ég get sagt ykkur eða kvartað yfir..
Tongue out  Hafið það bara öll gott og farið vel með ykkur sæta fólkKiss

28. maí 2009 klukkan 11:04
Lilja Sigurðardóttir
2 athugasemdir
20maí

endajaxlalausa Lilja

Nú er ég komin aftur í vinnuna eftir tveggja daga veikindaleyfi.. það var verið að draga alla fjóra endajaxlanaUndecided gott að það sé búið en ég er enn svolítið bólgin og alveg útúr dópuðTongue out tek parkodin forte á 4 tíma fresti eða minna og ég þoli svona lyf ekkert allt of velSurprised svo er tungan mín svo dofin að það er fáránlegt! Svo var ein í vinnunni líka að hræða mig með því að segja mér frá einni þar sem bólgan seig niður og svo varð hún öll marin, ég ætla að vona að það gerist ekki fyrir mig þar sem Gunni er að fara útskrifast næsta laugardag og ég þar af leiðandi að fara hitta fullt af nýju fólki.. ég er búin að vera taka einhverja bólgueyðandi stera en tók síðustu í morgun og það var sagt að ég gæti bólgnað eftir að ég hætti á þeim en ég vona að það verði ekki alvarlegt! samt væri það nú alveg týpískt ég, ekki satt??!!!Surprised jæja krossum fingurTongue out Ég veit ekki alveg hvort ég verði í vinnunni í allan dag.. það kemur bara í ljós hvað ég þoli..Smile 
Á morgun fer ég í vax til Andreu, klippingu til Tinnu og svo þarf ég að baka fyrir kaffið sem ég verð með á föstudagsmorgun í vinnunni.. ég ætla að baka tvær kökur, einn heitan rétt og gera osta- og rækjusalatWink það er bara verst að af því að það er frí á morgun þá eru nokkrir sem ætla að vera í fríi á föstudaginn.. en það er bara ágætt þá er meira fyrir okkur hinWink 
Svo er bara undirbúningur fyrir veisluna hans Gunna, það þarf að kaupa vín, borðskraut o.þ.h... þetta verður svaka veisla, það koma um 80 mannsSmile ég er bara farin að hlakka tilLaughing 
Já.. annars held ég nú að það sé ekkert fleira framundan.. vildi bara láta vita að ég væri á lífiTongue out


jú auðvitað er fleira að frétta.. við vorum í öðru sæti í eurovision!!!!! vá hvað ég var ánægð!! við fórum til Gísla og Berglindar í grill og partýWink það var svaka stemming hjá okkur og þetta var bara æðislegt kvöld!Laughing


Lilja
 
20. maí 2009 klukkan 08:49
Lilja Sigurðardóttir
2 athugasemdir
15maí

sumarfílingur;)

ó hvað mig langar út í sólina!Frown þetta er fyrsta vikan í 5 vikur sem ég þarf að vinna 5 dagaSurprised það var frí einn dag í hverri einustu viku í 4 vikur og síðasta föstudag var þrifadagur í vinnunni og þá var bara e-ð húllumhæ og lítið unniðTongue out svo þetta er alveg agalega löng vikaSurprised hehe.. 
En mikið er ég nú ánægð að við skyldum komast áfram í aðalkeppni eurovision
Laughing það verður sko eitthvað djamm á morgunWink 

Gunni er búinn í prófum og brilleraði auðvitað
Kiss Hann kláraði á miðvikudaginn, ég fór upp í skóla til hans í hádeginu og borðaði með honum. Þá voru strákarnir komnir með bjór í hendi og nokkrir orðnir ansi rakirSurprised hehe.. Ég fór nú svo bara aftur í vinnuna, skellti mér í ljós eftir vinnu og síðan í ræktina.. duglegWink það var þrekpróf og ég var bara búin að bæta mig töluvertWink En já Gunni fór með strákunum á svaðalegt fyllerí og ég náði í hann klukkan hálf 11, þá var hann sko frekar hress! eða ekki..Undecided hehe.. hann skellti sér svo vestur í gær, þurfti að fara með tvo jeppa á patró af því hann ætlar að skipta um body á jeppanum sínum þar þegar hann hefur tíma.. Hann kemur svo aftur í dag.. ég ætla að fara með hann eitthvað út að borða og aðeins að halda upp á það með honum að hann sé búinn með skólannLaughing var jafnvel að hugsa um að skreppa bara á Sægreifann og bjóða honum upp á humarsúpu og bjórWink 

Við erum að spá í að nýta góða veðrið, sem er spáð á morgun, til að gera garðinn fínan.. klippa runna og slá og svona
Wink 

Jæja þetta er ágætt í bili, endilega kommentið
Tongue out 
15. maí 2009 klukkan 11:21
Lilja Sigurðardóttir
2 athugasemdir
12maí

12.05.09

Núna ætla ég að blogga fyrir GunnaCool

Ég er í vinnunni.. þreytt eins og vanalega
Tongue out Og vá hvað mig langar í smá frí! mér finnst allir vera að fara í frí.. fólk er náttúrulega að klára prófin og fer þá í smá frí og svo veit ég um tvær sem ætla að vera í fríi í allt sumar og ég væri svoo til í það!!!Tongue out Ég er alveg komin með nóg af þessari vinnu.. þetta er svo sem ágæt vinna, fínt fólk og oft eitthvað að ske, plús að það er frí um helgar en.. þetta er ekki beint það sem mig langar að vinna við.. og svo núna þegar að það líður á sumarið þá verður ennþá rólegra hjá mér.. en þá koma líka sumarstarfsmennirnir og þá jafnast meðalaldurinn aðeinsWink ég fæ nú eitthvað lítið sumarfrí af því í fyrra ætlaði ég að hætta eftir sumarið en ákvað svo að vera hérna áfram í vetur og þá fékk ég borgað þessar þrjár vikur sem ég fékk frí þegar ég fór til Tenerife.. plús það að ég fékk nokkra daga í frí um jólin og 3 daga um páskana svo já.. ég á nú frekar lítið frí inni, ekki nema nokkra daga baraFrown En ég hætti nú 20. ágúst því þá förum við til TyrklandsLaughingLaughing Ég ætla líka að taka bara svona einn og einn dag í sumar.. reyndar langaði okkur rosalega til að fara hringinn í kringum landið af því ég hef aldrei farið og Gunni fór það einu sinni bara á hraðferð svo okkur langar til að fara og vera bara í róleg heitum að skoðaSmile en þetta kemur allt í ljós.. nóg um þær pælingarInnocent

Gunni er að fara í síðasta prófið á morgun og er þá búinn með skólann
Laughing hann útskrifast 23. maí og þá verður svaka partý.. það er búið að leigja sal og senda út boðskort. Veislan byrjar klukkan sex og það verða einhverjir tapasréttir, svo eftir veisluna, svona um 10 eða 11 þá verður partýWink Þá verður þetta bara opið og allir mega koma, það verður meira að segja bollaTongue out Þetta verður rosa fínt.. Bára er búin að plana og planaWink 
Ég var svo að spá í að bjóða Gunna út að borða á föstudaginn til að halda upp á þetta.. ekkert fínt svo sem heldur bara svona gera eitthvað pínu rómó
Cool 
 
Námskeiðið sem ég er á í Laugum er að enda, þetta er síðasta vikan.. og vitið þið það ég er búin að mæta í alla tímana! reyndar fyrir utan tvo um páskana af því þá fór ég vestur. en ég hef s.s. ekki skrópað í einum tíma!
Laughing ég er svo stolt af mér.. en það er nú önnur saga með árangurinn.. maður heldur alltaf að maður geti bara skellt sér á eitt námskeið og þá fari bumban sem maður þolir ekki en það bara gerist ekki! Ég er ekkert búin að léttast og fituprósentan var meira að segja hærri í síðustu mælingu.. hún sagði reyndar að það væri ekkert að marka það, þetta er bara mælt með vigt og það er frekar ónákvæmt.  En ég er nú búin að styrkjast alveg heilmikið og má nú bara vera ánægð með þaðCool Í gær fengum við að fara í baðstofuna eftir æfingu og vá hvað maður gæti vanist því! það var bara æði.. miklu flottari klefar og sturtur.. maður fær handklæði, baðslopp og svo getur maður farið í fullt af gufum og potta og bara slakað á! úff ég var sko að fíla þaðLaughing ég er alveg ákveðin í því að fara þangað aftur einhvern tíma, kannski að skella sér í nudd líkaWink 

Í kvöld er svo eurovision. Ég er búin að bjóða Andreu og Sigrúnu að koma og það mega allir koma sem vilja
Wink ég ætla frekar að byggja um stemmingu fyrir kvöldinu heldur en laugardagskvöldinu, allavega þangað til ég veit hvort við komumst áfram í kvöldUndecided ég er ekki að fíla þessar undankeppnir!

úff það er svo langt síðan að ég bloggaði að ég hef allt of mikið að segja!

síðasta föstudag var þrifadagur í vinnunni.. þá velur hvert svið sér þema og klæðir sig upp í búninga. við vorum 2007 þema.. klæddum okkur eins og bankastarfsmenn og vorum meðal annars með súkkulaðigosbrunn, ávexti og kampavín
Wink gerðum alveg svaka mikið úr þessu og auðvitað unnum viðWink fengum hvítvín eða rauðvín. Ég fékk kassa með 4 litlum hvítvínsflöskum, ekki slæmt þaðLaughing ætli að ég drekki þær ekki í kvöldWink allavega eina..
en já þrifadagur heitir þetta en það varð nú eitthvað lítið af þrifum.. við þurrkuðum aðeins af borðunum hjá okkur en annars var nú lítið gert! 

jæja þetta er komið nóg.. nú man ég ekki meir! endilega kommentið svo ég nenni nú að blogga oftar
Wink 

12. maí 2009 klukkan 10:50
Lilja Sigurðardóttir
2 athugasemdir
04maí

Þreyta.is!

úff ég er sko þreyttari en allt sem þreytt er!! langar ótrúlega mikið heim að sofa!Undecided það er líka mest pirrandi í heimi þegar Gunni er í prófum og er bara heima sofandi meðan ég þarf að drattast í vinnu á hverjum morgni! bitra égTongue out hehe.. ohh hvað ég vildi að ég gæti tekið mér svona mánuð í sumarfrí.. en nei ég fæ ekkert frí fyrr en í ágúst.. 

Helgin var rosa fín.. mamma átti afmæli á fimmtudaginn og bauð okkur í mat af því tilefni.. eftir matinn kíkti ég aðeins heim til Elsu. Aldís, Andrea og Þórdís voru þar.. Ég drakk eina hvítvínsflösku en fór svo bara heim um tólfleitið alveg uppgefin, því ég hafði sko mætt í ræktina klukkan hálf sjö um morguninn! Jæja á föstudaginn svaf ég svo út.. ó hvað það var ljúftTongue out síðan fór ég bara í það að þrífa allt hátt og lágt... og það var sko kominn tími tilSurprised síðan um kvöldið fórum við aftur í mat til mömmu.. reyndar ekki fyrr en níu eða hálftíu.. En Hósa og Júlli voru að koma í bæinn og mamma var með fiskisúpu og ég varð að fá mér súpu, enda er þetta besta súpa í heimiWink við fórum svo bara heim að sofa um 12.. á laugardaginn fór ég með Andreu í búðir. Ég keypti mér buxur og skyrtuLaughing ég var alveg að krepera mig langaði svo í e-ð.. hehe.. heyrðu síðan var afmæli um kvöldið hjá Elsu og Binna á Players. Þemað var frægt fólk.. ég var Mary í Something about MaryWink Tinna drápstrúðurinn og Ingimar var mjallhvít svo eitthvað sé nefnt.. Það var frír bjór í boði og skotin voru ekki nema á 500kallTongue out svo það var slatti drukkið af skotum! ég skemmti mér alveg konunglega.. enda frekar langt síðan ég hef farið á djammið bara með stelpunum.. ég dansaði alveg helling! jæja síðan fór ég nú bara heim.. sat þar og drakk með Gunna í einhvern tíma.. svo fór gærdagurinn bara í þynnku. 
Ég sé rúmið mitt í hyllingum! langar heim að sofa eftir vinnu en nei ég þarf að mæta í ræktina.. fer bara snemma að sofaSmile 

þangað til næstKiss 
04. maí 2009 klukkan 08:48
Lilja Sigurðardóttir
2 athugasemdir
24apríl

Gleðilegt sumar..

Ég ætla að blogga fyrir Sigrúnu.. ég hef verið voðalega löt við að blogga, enda eru allir hættir því!Surprised sem mér finnst nú reyndar mjög leiðinlegt þar sem ég get ekki farið inná facebook í vinnunni og get bara skoðað blogg.. þannig þið sem enn lesið bloggið mitt, farið þið þá sjálf að bloggaWink 

Heyrðu hvað er búið að ske.. humm.. síðustu helgi vorum við nú bara frekar róleg, nema reyndar Gunni.. hann fór í sína síðustu vísindaferð með skólanum á föstudaginn og fagnaði því vel
Cool ég fékk mér aðeins í glas, það var partý heima hjá okkur. En við vorum nú bara farin að sofa uppúr eitt.. á laugardeginum vaknaði ég bara hress, skellti mér í ræktina og sund með múttuTongue out svo fór ég bara heim og slappaði afSmile á sunnudagskvöldið buðum við Palla og Maríu í lambalæri og tókum því svo bara rólegaTongue out 

Gísli bróðir fór í aðgerð á föstudaginn, það var verið að skipta um gangráð eða þetta heitir nú víst bjargráður sem hann er með.. aðgerðin gekk vel og hann er kominn heim núna.. er nú reyndar uppdópaður alla daga, því þetta er víst svo svakalega sársaukafullt!
Undecided 

Ég er búin að vera voða dugleg í ræktinni og mæti 4-5 sinnum í viku, sem telst nú met fyrir mig
Laughing við mamma förum saman og hún er að standa sig eins og hetjaWink 

Á miðvikudagskvöldið ætlaði ég að hafa voða kósý kvöld og fá mér lasagna, hvítvín og horfa á sjónvarpið og svo var ég búin að hugsa mér að fara jafnvel eitthvað út seinna um kvöldið.. Gunni var uppí skóla að taka próf og kom heim um tíu.. þegar hann kom heim var ég hálf dáin í sófanum úr þreytu! úff hvað ég var þreytt og ég var sko ekki að nenna út þá.. svo við lágum í sófanum allt kvöldið og fórum ekki að sofa fyrr en klukkan hálf 3.. 

Svo var sumardagurinn fyrsti í gær.. það var nú reyndar ekki að sjá því það rigndi næstum því stöðugt
Undecided ég svaf til hádegis en skreið þá fram úr.. Gunni fór að umfelga nokkra bíla, á meðan litaði Tinna hárið mitt svo nú er ég algjör blondínaWink Við skruppum svo aðeins í kringluna og ég keypti mér kjól í HagkaupWink rosa sætan og sumarlegan.. svona sem ég notað í vinnunaSmile ég var nefnilega svo heppin að eiga 4000kr gjafabréf í kringluna sem ég fékk frá Gísli bróðir í afmælisgjöfTongue out 
Um sex leitið brunuðum við af stað í Bláa lónið.. vorum þar alveg í rúmlega klukkutíma og höfðum það kósý.. það voru rosa fáir svo það var bara þægilegt
Laughing ég myndi fara einu sinni í mánuði ef það væri ekki svona ógeðslega dýrt! það kostar sko 3200kr á mann! bara rugl sko..Undecided við fengum reyndar 2 fyrir 1 því það var e-ð tilboð..
Síðan fórum við bara heim og pöntuðum okkur pizzu og buffalo wings
Surprised 

Í kvöld er okkur svo boðið í grill til Palla og Maríu, hlakka bara til að fá góða matinn hjá þeim
Wink ætli maður fái sér nú ekki aðeins í glas líka.. svo annað kvöld er auðvitað kosninga baráttan svo þá verður e-ð.. Gunni er svo eiturspenntur að ég veit nú ekki alveg hvort ég vilji vera nálægt honum þá hehe..  kemur allt í ljós hvernig þetta fer.. Smile

Jæja Sigrún mín hér er smá lesning fyrir þig
Wink
Annars segi ég bara góða helgi
Wink
24. apríl 2009 klukkan 13:34
Lilja Sigurðardóttir
4 athugasemdir
14apríl

páskarnir búnir:(

Þá er hið langþráða páskafrí búið..Frown Þetta var bara nokkuð gott páskafrí fyrir utan smá biturleika og pirring í mér fyrir að fara ekki norður.. en ég ætla bara að ráða næstu páskum í staðinnTongue out Við gerðum alveg slatta í fríinu og ég ætlaði að vera löngu búin að blogga en ekkert varð af því..
við fórum vestur laugardaginn 4. apríl, vöknuðum klukkan 8 og lögðum af stað í Baldur. Egill og Gunna fengu far með okkur og bíllinn var svo drekkhlaðinn að við komumst varla áfram
Surprised hehe.. jæja þegar við komum var Bára tilbúin við pönnsur handa okkur sem við hökkuðum í okkur og já ég man nú ekki hvað við gerðum þennan dag.. jú við fórum í svaka langan göngutúr með Dís.. svo um kvöldið skelltum við okkur nokkur í Pollinn, drukkum þar nokkra bjóra, klæddum okkur svo upp og kíktum á ÞorpiðWink Þar var drukkið og djammað til þrjú.. þá kíktum við aðeins heim til Palla en ég er ekki að fíla eftirpartý og svo var ég líka dauðþreytt eftir daginn svo við vorum farin heim rétt rúmlega fjögur.. sunnudagurinn fór nú bara í þynnku og þá var ekkert gert nema horfa á sjónvarpið. Ég fór nú reyndar aðeins út að labba með Dís en lagðist svo bara aftur fyrir framan sjónvarpiðCool á mánudeginum vöknuðum við um 10 og fórum að brasa í bátnum hennar Báru (Hlaðseyrinni).. og haldiði að ég hafi ekki bara botnmálað bátinn, ég er sko svo stolt af mérWink Gunni var að brasa e-ð í vélinni á meðanTongue out jæja við fórum líka að brasa í bátnum sem Gunni og Palli eiga. Ég þreif hann allan að innan og svo var gólfið rifið upp úr honum! hann var fullur af vatni go sætin héldust ekkert svo það var ákveðið að rífa upp gólfið og gera svo nýtt sem á eftir að halda sætunum og svona.. æi það er ekkert hægt að lýsa þessu í orðumSurprised þið getið bara séð myndirnar þegar ég set þær innWinksvo kíktum við í pollinn þetta kvöld líka.. humm.. hvað gerðum við svo.. við fórum á sjóskytterí, ég prófaði meira að segja að skjótaWink gerði það nú bara fyrir Gunna, ég er ekkert sérstaklega að fíla byssurSurprised Við fórum líka á snjósleða, sem er nú ekki frásögufærandi.. ég ætlaði nefnilega að vera svo klár og sýna Gunnu hvernig ætti að stýra sleðanum. Hún var e-ð að kvarta yfir því að það væri svo erfitt að stýra honum og þar sem mér fannst ég vera orðin svo góð í fyrra ákvað ég að sýna henni hvernig ætti að gera þettaWink en ég hef nú e-ð vera farin að gleyma því ég henti okkur báðum af á algjörlega slettu svæðiSurprised hahahha.. æi þetta var bara fyndið! en það var nú ekki eins fyndið þegar ég fattaði ég hafði týnt myndavélinniSurprised en sem betur fer fundum við hana á staðnum þar sem við duttumLaughing Á laugardaginn síðasta fórum við í jeppaferð upp á Glámu, sem er hæsta fjallið á vestfjörðum. Petrína kom með okkur. Við lögðum af stað klukkan 9 og komum til baka kl. 9 um kvöldiðSurprised það var alveg stemming og gaman til svona 12 en eftir það var ekkert svakalega gaman.. eftir því sem við komum ofar sáum við minna. Það var sko ekkert skyggni og svo vorum við alveg á 10 jeppum og það voru alltaf allir að festa sig.. nema við, enda er Gunni svo góður bílstjóriWink en já við vorum ekki komin upp á topp fyrr en um 5 leitið.. heimferðin gekk nú aðeins hraðar fyrir sig en við vorum samt alveg 12 tíma í þessari ferð! ég fer ekki í jeppaferð aftur fyrr en við erum komin með GPS, þá getum við allavega farið heim ef við nennum ekki meir.. um kvöldið var svo dottið í það.. við vorum alveg til 5 þá nóttina, en það var nú bara stutt miðað við flesta sem voru að til 8 eða 9 um morguninnSurprised ég er allavega mjög feginn að við vorum bara frekar róleg í djamminu.. enda búin að taka ágætlega á því í vetur! svo þetta var fínt.. gott að vera í fríi og vakna úthvíldur og hress en ekki þunnurLaughing Við komum til baka í gærkvöldi. Keyrðum landleiðina.. og vá hvað það þarf að fara gera nýja vegi!!! þetta er ekki fólki bjóðandi! 

Nú þarf maður þarf að fara koma reglu á allt aftur. Mæta í vinnu, borða hollt og fara í ræktina
Wink 
það er nú alveg slatti af frídögum núna á næstunni.. ekki slæmt að vinna í svona vinnu þá
Wink æðislegt að fá frí alla rauða dagaLaughing 

Já ég held að það sé ekki fleira í bili.. ég kannski bæti við þetta ef ég man e-ð fleira og set svo inn myndir í kvöld
Tongue out  
14. apríl 2009 klukkan 10:00
Lilja Sigurðardóttir
3 athugasemdir
02apríl

2.apríl

halló halló!Tongue out Ég er orðin voðalega léleg í að blogga.. veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja..

Síðasta föstudag fórum við á Árshátíð hjá skólanum hans Gunna. Við mættum fyrir utan skólann kl.18:30 og fórum þá með rútu upp í Skíðaskálann í Hveradölum. Það var mjög skemmtilegt. Ofsalega góður matur og svo skemmdi það nú ekki fyrir að Dalton var að spila og það var ægilegt fjör.. ég dansaði alveg slatta.. lét reyndar traðka pínu ofan á mér í leiðinni en það er nú allt í lagiTongue out síðan var farið með rútunum um eitt leitið og það var auðvitað brunað beint í bæinnWink Þetta var ansi gott djamm, við tókum sko alla helgina í þynnku! þetta tekur sko áUndecided heyrðu já svo er ég nú bara ekkert búin að gera í þessari viku.. eða jú ég byrjaði á átaks námskeiði í laugum. ákvað að draga múttu með mér í ræktina svo við skráðum okkur á þetta námskeið. það byrjaði á mánudaginn en þá voru bara mælingar og svo byrjaði námskeiðið í gær, þá vorum við látnar púlaWink Mig langaði að prófa þetta, athuga hvort ég geti klárað eitt námskeið! hef alltaf byrjað og staðið mig voða vel fyrst en svo bara hætt.. þannig ég ætla að sjá hvort ég geti þetta ekki núnaCool 
 
Það er ekki nema þessi dagur og svo morgundagurinn og þá er ég komin í 10 daga fríLaughingLaughing úff hvað ég hlakka til!!!! ég elska fríTongue out 
 
í kvöld er okkur boðið í mat til mömmu því að Hósa frænka er í bænum og mamma ætlar að hafa mat svo við getum öll histWink 

Já.. ég held að það sé nú ekkert fleira..  

02. apríl 2009 klukkan 13:17
Lilja Sigurðardóttir
6 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Lilja Sigurðardóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Íbúðalánasjóður
  • Hjúskaparstaða: ástfangin upp fyrir haus:)
  • Um mig: Ég er hress, ákveðin, jákvæð og nokkuð sátt með sjálfa mig:)
  • Annað: Langar að kynnast nýju fólki og hafa gaman af lífinu:D

Auglýsing

Klukkan

Það eru

Innskráningar kubbur